<< Back

Skólapeysa - Dökkrauð

4.990kr

🌎 Hjallastefnupeysa fyrir leik- og grunnskóla úr 100% lífrænni bómull

Peysan er sérhönnuð fyrir Hjallastefnuna og er klassískt háskólapeysusnið sem er mjög klæðilegt. Efnið er unnið úr 100% lífrænni gæðabómull og er peysan því einstaklega mjúk og þægileg. Peysan er unnin úr 320 gramma lífrænni bómull og heldur því vel hita án þess að vera of þykk.

 

Litur: Dökkrauður

 

Stærðir:
86
92
98
104
110
116
122 (6/7 ára) 
128 (7/8 ára)
140 (9-10 ára)
152 (11/12 ára)
164 (13/14 ára)

 

Merki: Lítið Hjallastefnulogo er á vinstri barm

 

Þróun fatamála hjá Hjallastefnunni

Hjallastefnan hefur unnið að því að stíga stór umhverfisskref í fatamálum og var fyrsta skrefið ullarpeysa Hjallastefnunnar sem og að hætta þróun á vörulínum úr flísefni vegna umhverfissjónarmiða.  Framtíðarstefna Hjallastefnunnar er einnig að vinna með fyrirtækjum sem sérhæfa sig í umhverfisvænni framleiðslu og eru samfélagslega ábyrg. Ákveðið var að taka upp samvinnu við fyrirtækið Continental Clothing sem er alþjóðlega viðurkennt og hefur vottanir um lífræna og vistvæna framleiðslu. Nýju peysurnar eru hluti af þessari nýju stefnu og er varan 100% lífrænt ræktuð bómull og er unnin samkvæmt ströngustu gæðakröfum. Dregið hefur verið úr kolefnisfótspori um 90% og framleiðslan er gæðavottuð.

 

Þvottaleiðbeiningar

 

Setja í körfu

Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia 2013