<< Back

Mói Joggingbuxur - Svartar

4.690kr

🌎 Hjallastefnan og íslenska fyrirtækið Mói í samstarf

Hjallastefnan og  Mói hafa hafið samstarf og eru nú hinar vinsælu joggingbuxur frá Móa fáanlegar í vefverslun Hjallastefnunnar.

Fyrirtækið Mói er íslenskt fatamerki sem hefur það að markmiði að skapa flott og frumleg föt fyrir öflug börn. Fyrirtækið vill gera heiminn betri með sjálfbærni að leiðarljósi eins og Hjallastefnan og tryggir að framleiðslan sé vottuð, samfélagslega ábyrg og lífræn.  

Buxurnar eru klassískt joggingbuxnasnið með teygjanlegu stroffi í mittið og ökkla. Efnið í buxunum er einstaklega mjúkt og þægilegt en jafnframt slitsterkt og blanda af lífrænni bómull og teygju.

 

Litur: svartur

Merki: lítið Hjallastefnulogo á vinstri skálm

Stærðir: Buxurnar koma í stærðum fyrir yngsta og miðstig Barnaskólanna

5-6 ára (110-116)

7-8 ára (122-128)

9-10 ára (134-140)

11 ára (146-152)

 

Vistvæn, vottuð og ábyrg framleiðsla

Hjallastefnan hefur unnið að því að stíga stór umhverfisskref í fatamálum og var fyrsta skrefið Ullarpeysa Hjallastefnunnar sem og að hætta með flísefni.  Framtíðarstefna Hjallastefnunnar er einnig að vinna með fyrirtækjum sem sérhæfa sig í  umhverfisvænni framleiðslu og eru samfélagslega ábyrg.  Ákveðið var að taka upp samvinnu við fyrirtæki Continental Clothing sem er alþjóðlega viðurkennt og hefur vottanir um lífræna og vistvæna framleiðslu. Nýju buxurnar eru hluti af þessari nýju stefnu og er notuð lífrænt ræktuð bómull sem er unnin samkvæmt ströngustu gæðakröfum um umhverfisstefnu, dregið hefur verið úr kolefnisfótspori  og framleiðslan er gæðavottuð.

 

Þvottaleiðbeiningar

Setja í körfu

Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia 2013