4.190kr
🌎 NÝ VÖRULÍNA - Hjallastefnubolur fyrir Barnaskólana úr 100% lífrænni bómull
Það er með mikilli gleði að Hjallastefnan kynnir nýja vörulínu í langermabolum fyrir Barnaskólana. Langermabolurinn er unnin úr 100% lífrænni gæðabómull og er því einstaklega mjúkur og þægilegur. Bolurinn er sérhannaður fyrir Hjallastefnuna og klassískt háskólabolasnið sem er mjög klæðilegt og fallegt.
Litur: Rauður
Stærðir:
116 (5-6 ára)
122 (6-7 ára)
128 (7-8 ára)
140 (9-10 ára)
152 (11-12 ára)
164 (13-14 ára)
Merki: Lítið Hjallastefnulogo er á vinstri barm bolsins eins og á fötum fyrir Barnaskólabörn
Þróun fatamála hjá Hjallastefnunni
Hjallastefnan hefur unnið að því að stíga stór umhverfisskref í fatamálum og var fyrsta skrefið ullarpeysa Hjallastefnunnar sem og að hætta þróun á vörulínum úr flísefni vegna umhverfissjónarmiða. Framtíðarstefna Hjallastefnunnar er einnig að vinna með fyrirtækjum sem sérhæfa sig í umhverfisvænni framleiðslu og eru samfélagslega ábyrg. Ákveðið var að taka upp samvinnu við fyrirtækið Continental Clothing sem er alþjóðlega viðurkennt og hefur vottanir um lífræna og vistvæna framleiðslu. Nýju vörulínurnar eru hluti af þessari nýju stefnu og er varan 100% lífrænt ræktuð bómull og er unnin samkvæmt ströngustu gæðakröfum. Dregið hefur verið úr kolefnisfótspori um 90% og framleiðslan er gæðavottuð.
Þvottaleiðbeiningar
