<< Back

Leggings - Bláar

2.990kr

🌎  Bláar leggings úr lífrænni bómull og teygju

Leggings buxur fyrir leikskólabörn. Buxurnar eru unnar úr 96% lífrænni gæðabómull og 4% teygju og eru buxurnar því einstaklega mjúkar og þægilegar.   

Endurbætt snið
Þessar nýju leggins buxur eru endurbætt snið af eldri leggins buxum Hjallastefnunnar. Sniðið hefur verið endurskoðað og aðlagað sem og er efnið í buxunum þykkara en af eldri týpu. Fatanefnd Hjallastefnunnar tók tillögur og ábendingar foreldra og starfsfólks til skoðunar og vann með hönnuði að betrumbótum á sniði. Að auki var efnið í buxunum þykkt úr 190g efni í 260 grömm. Buxurnar eru því þykkari og endingarbetri en blanda af lífrænni bómul og teygju gera þær samt áfram einstaklega mjúkar og þægilegar fyrir börnin. 

 

Litur: Blár

 

Stærðir: 86, 92, 98, 104, 110, 116, 122, 128 

 

Merki: Lítið Hjallastefnumerki neðarlega á vinstri skálm

 

 

Þróun fatamála hjá Hjallastefnunni

Hjallastefnan hefur unnið að því að stíga stór umhverfisskref í fatamálum og var fyrsta skrefið ullarpeysa Hjallastefnunnar sem og að hætta þróun á vörulínum úr flísefni vegna umhverfissjónarmiða.  Framtíðarstefna Hjallastefnunnar er einnig að vinna með fyrirtækjum sem sérhæfa sig í umhverfisvænni framleiðslu og eru samfélagslega ábyrg. Ákveðið var að taka upp samvinnu við fyrirtækið Continental Clothing sem er alþjóðlega viðurkennt og hefur vottanir um lífræna og vistvæna framleiðslu. Þessar nýju leggings eru hluti af þessari nýju stefnu og er varan úr lífrænni gæðabómull og er unnin samkvæmt ströngustu gæðakröfum. Dregið hefur verið úr kolefnisfótspori um 90% og framleiðslan er gæðavottuð.

 

Þvottaleiðbeiningar

 

Setja í körfu

Vefsíðugerð & vefhönnun: Smartmedia 2013